Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild: Hraðsamantekt á eigindlegum rannsóknum um hvetjandi og hindrandi þætti frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2026 · 102 (2) · 52-61
DOI: 10.33112/th.102.2.2 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2026. Verfasst von Birna Ásgeirsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Að lýsa reynslu hjúkrunarfræðinga af framkvæmd snemmbærrar hreyfingar sjúklinga á gjörgæsludeildum. Snemmbær hreyfing er lykilþáttur í endurhæfingu og langtímalífsgæðum gjörgæslusjúklinga en framkvæmd hennar í klínísku starfi getur verið flókin. Mikilvægt er því að greina þætti sem hvetja og hindra framkvæmd hennar. Aðferð Hraðsamantekt var framkvæmd í samræmi við leiðbeiningar Cochranestofnunarinnar. Gagnaúrvinnsla byggðist á samþættri heildarmynd (e. meta-aggregation) samkvæmt aðferðafræði Joanna Briggs-stofnunarinnar. Aðleiðsla var notuð við greiningu gagna. Leitað var í rafrænum gagnagrunnum (CINAHL, PubMed, Scopus, Web of Science og Leitir.is) án tímamarka og var leitin síðast uppfærð í janúar 2025. Tveir rýnar mátu gæði rannsóknanna og unnu sameiginlega að samþættingu gagna. Gögnum var raðað e$ir innihaldi og þeim lýst með orðum (e. narrative) og í töflu sem gerði klei$ að greina samspil hvetjandi og hindrandi þátta. Niðurstöður Tólf eigindlegar rannsóknir uppfylltu inntökuskilyrðin. Alls voru 217 hvetjandi og 242 hindrandi þættir. Þættirnir sameinuðust í eitt meginþema: „Áhrif einstaklingsbundinna, faglegra og skipulagslegra þátta á framkvæmd snemmbærrar hreyfingar“, með fjórum undirþemum: (a) Einstaklingsbundnir þættir – innri trú og viðhorf sem drifkra$ur; (b) Fræðsla og ytri hvatning – aðgangur að þekkingu og fyrirmyndum; (c) Skipulagsþættir og umhverfi – samhæfing, verklag og aðstæður sem mótandi afl og (d) Samskiptamynstur og samvinna – teymisvinna og þátttaka sjúklinga og aðstandenda. Ályktanir Framkvæmd snemmbærrar hreyfingar á gjörgæsludeildum ræðst af fjölmörgum einstaklingsbundnum, faglegum og skipulagslegum þáttum í klínísku starfi hjúkrunarfræðinga. Draga má úr hindrunum með markvissri fræðslu, þjálfun starfsfólks og skýrri stefnu í hjúkrun gjörgæslusjúklinga. Framsetning á hvetjandi og hindrandi þáttum getur verið gagnleg til að styðja árangursríka framkvæmd snemmbærar hreyfingar gjörgæslusjúklinga í klínísku starfi hjúkrunarfræðinga. Lykilorð snemmbær hreyfing, gjörgæsla, hjúkrun, hvetjandi, hindrandi, eigindlegar rannsóknir
Zitieren
APA
Ásgeirsdóttir, B., Klinke, M., & Jónasdóttir, R. (2026). Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild: Hraðsamantekt á eigindlegum rannsóknum um hvetjandi og hindrandi þætti frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 102(2), 52-61. https://doi.org/10.33112/th.102.2.2
Vancouver
Ásgeirsdóttir B, Klinke M, Jónasdóttir R. Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild: Hraðsamantekt á eigindlegum rannsóknum um hvetjandi og hindrandi þætti frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2026;102(2):52-61. doi:10.33112/th.102.2.2
BibTeX
@article{sgeirsdttir2026,
author = {Ásgeirsdóttir, Birna and Klinke, Marianne and Jónasdóttir, Rannveig},
title = {Snemmbær hreyfing sjúklinga á gjörgæsludeild: Hraðsamantekt á eigindlegum rannsóknum um hvetjandi og hindrandi þætti frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2026},
volume = {102},
number = {2},
pages = {52--61},
doi = {10.33112/th.102.2.2}
}
EUVIMED