EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

„Sinnuleysið olli vanlíðan en stuðningurinn vellíðan:“ Reynsla ráðgjafa á geðsviði Landspítala af viðbrögðum stjórnenda við ofbeldisatvikum og áhrif á úrvinnslu

Erna Valdís Jónsdóttir, Kristín Linda Hjartardóttir, Hulda Sædís Bryngeirsdóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2025

DOI: 10.33112/th.101.2 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2025. Verfasst von Erna Valdís Jónsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu ráðgjafa á geðsviði Landspítala af viðbrögðum stjórnenda við starfstengdu ofbeldi og hvort viðbrögðin höfðu áhrif á úrvinnslu þolenda á því að hafa orðið fyrir ofbeldi í starfi. Aðferð Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru ráðgjafar á geðsviði Landspítala sem höfðu orðið fyrir starfstengdu ofbeldi fyrir yfir sex mánuðum síðan. Gagnaöflun fór fram með einu 42-69 mínútna löngu viðtali við hvern þátttakanda. Þátttakendur voru 12 talsins, sex konur og sex karlar. Niðurstöður Yfirþema rannsóknarinnar var „Sinnuleysi stjórnandans jók á vanlíðan mína en mér leið betur þegar ég fann fyrir stuðningi“. Ráðgjafar sem fundu fyrir stuðningi stjórnenda í kjölfar ofbeldisatvika voru yfirleitt ánægðari í starfi og töldu stuðninginn auðvelda þeim úrvinnslu ofbeldisins. Ráðgjafar sem upplifðu sinnuleysi stjórnenda höfðu margir gefist upp á að vinna úr ofbeldinu eða upplifðu neikvæðar tilfinningar gagnvart sinnuleysinu. Meginþemun voru tvö: sinnuleysi stjórnenda og stuðningur stjórnenda sem vísar til mismunandi viðbragða stjórnenda við starfstengdum ofbeldisatvikum. Undirþemu fyrir sinnuleysi stjórnenda voru: úrræðaleysi: „Maður veit ekkert hvað er í boði“, gjaldfelling: „Eins og við séum ruslið í tunnunni hjá þeim“ og viðbragðsleysi: „Þetta er bara svona“. Undirþemu fyrir þemað stuðningur stjórnenda voru: samkennd: „Ég finn að fólki er ekki sama um mig“, úrræði: „Að fá stuðninginn var til mikilla bóta“ og viðurkenning: „Þá leið mér betur“. Ályktanir Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að sinnuleysi stjórnenda gagnvart starfstengdu ofbeldi auki á vanlíðan þátttakenda en stuðningur stjórnenda í slíkum aðstæðum sé líklegur til að bæta líðan þeirra. Álykta má að aukinn stuðningur stjórnenda við ráðgjafa sem verða fyrir starfstengdu ofbeldi sé líklegur til að draga úr neikvæðum afleiðingum slíkrar reynslu. Lykilorð Ofbeldi á íslenskum geðdeildum, ráðgjafar, viðbrögð stjórnenda, áhrif á úrvinnslu, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði

Zitieren

APA

Jónsdóttir, E. V., Hjartardóttir, K. L., & Bryngeirsdóttir, H. S. (2025). „Sinnuleysið olli vanlíðan en stuðningurinn vellíðan:“ Reynsla ráðgjafa á geðsviði Landspítala af viðbrögðum stjórnenda við ofbeldisatvikum og áhrif á úrvinnslu. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.101.2

Vancouver

Jónsdóttir EV, Hjartardóttir KL, Bryngeirsdóttir HS. „Sinnuleysið olli vanlíðan en stuðningurinn vellíðan:“ Reynsla ráðgjafa á geðsviði Landspítala af viðbrögðum stjórnenda við ofbeldisatvikum og áhrif á úrvinnslu. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2025. doi:10.33112/th.101.2

BibTeX
@article{Jnsdttir2025,
  author = {Jónsdóttir, Erna Valdís and Hjartardóttir, Kristín Linda and Bryngeirsdóttir, Hulda Sædís},
  title = {„Sinnuleysið olli vanlíðan en stuðningurinn vellíðan:“ Reynsla ráðgjafa á geðsviði Landspítala af viðbrögðum stjórnenda við ofbeldisatvikum og áhrif á úrvinnslu},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2025},
  doi = {10.33112/th.101.2}
}
Kostenlos starten →