„Ég upplifði að verða nánast lömuð af ótta:“ Álag foreldra á gjörgæsludeildum Landspítala árin 2017-2019 mælt með PSS:PICU
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2025
DOI: 10.33112/th.101.1 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2025. Verfasst von Sigríður Árna Gísladóttir und 2 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Rannsóknir sýna að foreldrar barna á gjörgæsludeild upplifa mikið álag og erfiðar tilfinningar í kjölfar legunnar. Álagið er margþætt og þeir foreldrar sem ekki ná að vinna úr álaginu eru líklegri til að þróa með sér langtíma líkamlegan og geðrænan vanda, til dæmis áfallastreituröskun. Mælitækið PSS:PICU (Parental stressor scale: Pediatric intensive care unit) var þróað til að meta upplifað álag foreldra barna á gjörgæsludeild. Tilgangur þessarar rannsóknar, sem er hluti af stærri rannsókn, var að nota mælitækið PSS:PICU til að meta eðli og umfang þess álags sem foreldrar upplifa þegar barn leggst inn á gjörgæsludeild á Landspítala og bera það saman við niðurstöður erlendra rannsókna. Einnig að kanna með opinni spurningu hvað stóð upp úr hjá foreldrum eftir gjörgæsludvölina. Aðferð Rannsóknin var framkvæmd með framskyggnu rannsóknarsniði með þátttöku foreldra barna sem legið höfðu í 48 klukkustundir eða lengur á gjörgæsludeildum Landspítala á tímabilinu janúar 2017 til maí 2019. Bakgrunnsupplýsingum var safnað frá foreldrum og lagður var fyrir þau spurningalistinn PSS:PICU í íslenskri útgáfu. Alvarleiki veikinda barna var metinn með PRISM-gildi (Pediatric Risk of Mortality). Niðurstöður Samtals tóku 29 foreldrar 19 barna þátt í rannsókninni. Heildarupplifun foreldra af gjörgæsludvölinni reyndist álagsvaldandi en 70% foreldra upplifðu miðlungs álag eða meira af dvölinni samkvæmt PSS:PICU. Niðurstöður sýndu að flokkurinn breytt hlutverk foreldra olli mestu álagi en því tilheyrir að geta ekki haldið á barni, að geta ekki sinnt barninu og geta ekki verið hjá grátandi barni. Sá staki þáttur í PSS:PICU sem olli foreldrum mestu álagi voru skyndileg viðvörunarhljóð en 55% foreldra töldu það valda miklu eða mjög miklu álagi. Flokkurinn hegðun fagfólks olli minnstu álagi. Ályktanir Niðurstöður eru í samræmi við erlendar rannsóknir með sama mælitæki. Niðurstöðurnar varpa ljósi á áður óþekkt umfang álags á foreldra barna á gjörgæsludeildum Landspítala. Hjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeildum eru í störfum sínum í lykilhlutverki til að greina álagsþætti sem foreldrar verða fyrir. Í hjúkrun sinni og umönnun foreldra barnanna geta hjúkrunarfræðingar markvisst unnið að því að fyrirbyggja og draga úr álagi sem foreldrar verða fyrir. Lykilhugtök Gjörgæsla, börn, foreldrar, álag, PSS:PICU
Zitieren
APA
Gísladóttir, S. Á., Birgisdóttir, H. B., & Kristjánsdóttir, G. (2025). „Ég upplifði að verða nánast lömuð af ótta:“ Álag foreldra á gjörgæsludeildum Landspítala árin 2017-2019 mælt með PSS:PICU. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.101.1
Vancouver
Gísladóttir SÁ, Birgisdóttir HB, Kristjánsdóttir G. „Ég upplifði að verða nánast lömuð af ótta:“ Álag foreldra á gjörgæsludeildum Landspítala árin 2017-2019 mælt með PSS:PICU. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2025. doi:10.33112/th.101.1
BibTeX
@article{Gsladttir2025,
author = {Gísladóttir, Sigríður Árna and Birgisdóttir, Henný Björk and Kristjánsdóttir, Guðrún},
title = {„Ég upplifði að verða nánast lömuð af ótta:“ Álag foreldra á gjörgæsludeildum Landspítala árin 2017-2019 mælt með PSS:PICU},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2025},
doi = {10.33112/th.101.1}
}
EUVIMED