EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Siðferðileg færni í hjúkrun: Fræðileg skilgreining

Sigríður Halldórsdóttir, Hulda Sædís Bryngeirsdóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024

DOI: 10.33112/th.100.3.4 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Sigríður Halldórsdóttir und 1 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Fræðileg skilgreining á siðferðilegri færni hjúkrunarfræðinga getur gagnast þeim í störfum sínum en engin slík skilgreining er til í hjúkrunarfræði. Tilgangur þessarar rannsóknar var að þróa slíka skilgreiningu og var rannsóknarspurningin því: hverjir eru undirstöðuþættir siðferðilegrar færni í hjúkrun, hver er skilgreining þeirra með tilliti til hjúkrunar og hver er fræðilega skilgreiningin á siðferðilegri færni í hjúkrun? Aðferð Aðferðin sem notuð var til að svara rannsóknarspurningunni var blönduð aðferð hugtakasamþættingar eins og henni er lýst af Walker og Avant (2018). Niðurstöður Siðferðileg færni í hjúkrun samanstóð af 12 undirþáttum. Þeir voru skilgreindir og síðan flokkaðir í þrjá meginþætti (skáletraðir): (1) Þekking og skilningur; að búa yfir siðferðilegri þekkingu og skilningi á helstu kenningum um fræðilega og hagnýta siðfræði og helstu siðareglur í hjúkrun; (2) Siðferðilegir eiginleikar; hafa siðferðisvitund og siðferðilega sjálfsvitund, hafa siðferðilega næmni og siðferðilega skynjun ásamt siðferðilegri dómgreind; (3) Hæfni og áræðni til að framkvæma; vera fær um siðferðilega rökhugsun, siðferðilega ígrundun og siðferðilega ákvarðanatöku ásamt því að hafa siðferðilegt hugrekki, siðferðilega virkni og sýna siðferðilega ábyrga framkomu. Fræðilega skilgreiningin var eftirfarandi: Siðferðileg færni í hjúkrun felur í sér að hjúkrunarfræðingurinn búi yfir siðferðilegri þekkingu og skilningi, hafi siðferðilega sjálfsvitund og siðferðisvitund, siðferðilega næmni og skynjun, auk siðferðilegrar dómgreindar. Jafnframt fól hún í sér að hjúkrunarfræðingurinn væri hæfur í siðferðilegri rökhugsun, ígrundun og ákvarðanatöku sem birtist í verki sem siðferðilegt hugrekki, siðferðileg virkni og siðferðileg framkoma í starfi. Ályktanir Fræðilega skilgreiningin lýsir siðferðilegri færni í hjúkrun og þeim eiginleikum sem prýða siðferðilega færan hjúkrunarfræðing. Álykta má að fræðileg skilgreining á siðferðilegri færni hjúkrunarfræðinga og skilgreining á undirstöðuþáttum hennar geti gagnast hjúkrunarfræðingum í störfum sínum. Lykilorð Siðferðileg færni, fræðileg skilgreining, hjúkrunarfræði, blönduð aðferð hugtakasamþættingar, siðfræðikennsla í hjúkrunarfræði

Zitieren

APA

Halldórsdóttir, S., & Bryngeirsdóttir, H. S. (2024). Siðferðileg færni í hjúkrun: Fræðileg skilgreining. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.3.4

Vancouver

Halldórsdóttir S, Bryngeirsdóttir HS. Siðferðileg færni í hjúkrun: Fræðileg skilgreining. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.3.4

BibTeX
@article{Halldrsdttir2024,
  author = {Halldórsdóttir, Sigríður and Bryngeirsdóttir, Hulda Sædís},
  title = {Siðferðileg færni í hjúkrun: Fræðileg skilgreining},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2024},
  doi = {10.33112/th.100.3.4}
}
Kostenlos starten →