Bein útgjöld og útgjaldabyrði heimilanna vegna heilbrigðisþjónustu
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024
DOI: 10.33112/th.100.3.1 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Rúnar Vilhjálmsson.
Abstract (Originalsprache)
Tilgangur Bein útgjöld heimila vegna heilbrigðisþjónustu hafa áhrif á aðgengi að heilbrigðisþjónustunni. Rannsóknin athugar þróun heilbrigðisútgjaldanna og hvort einstakir samfélagshópar verji hærri upphæðum og beri þyngri útgjaldabyrðar en aðrir. Aðferð Byggt er á niðurstöðum úr heilbrigðiskönnun meðal Íslendinga 18 ára og eldri sem fram fór vorið 2023. Þátttakendur komu úr netpanel Félagsvísindastofnunar og þjóðskrárúrtaki. Svarendur voru alls 5.482 og heimtur tæp 50%. Niðurstöður heilbrigðiskönnunarinnar voru bornar saman við niðurstöður eldri heilbrigðiskannana meðal Íslendinga á aldrinum 18-75 ára sem fram fóru á árunum 1998, 2006 og 2015. Meðalútgjöld heimila vegna heilbrigðismála og útgjaldabyrði (hlutfall heilbrigðisútgjalda af ráðstöfunartekjum heimilis) voru borin saman milli samfélagshópa og ára. Niðurstöður Sjá má samfellda raunhækkun útgjalda íslenskra heimila vegna heilbrigðismála á tímabilinu frá 1998 til 2022. Hlutdeild einstakra útgjaldaliða hefur jafnframt breyst og hefur hlutdeild læknisþjónustu, sjúkraþjálfunar og sálfræðiþjónustu í heildarútgjöldum heimilanna aukist en hlutdeild tannlæknisþjónustu, lyfja, tækja og annarra lyfjabúðarvara minnkað. Hlutfall heilbrigðisútgjalda af ráðstöfunartekjum heimilanna (útgjaldabyrði) hefur í heild ekki hækkað á undanförnum árum. Útgjöldunum er þó verulega misskipt milli samfélagshópa. Hæst er hlutfall heilbrigðisútgjalda af ráðstöfunartekjum á heimilum ungfullorðinna og einhleypra, á stærri heimilum og á heimilum einstæðra foreldra, einstaklinga utan vinnumarkaðar, grunnskólamenntaðra, lágtekjufólks og einstaklinga sem glíma við langvinna sjúkdóma og örorku. Ályktanir Þótt útgjaldabyrði íslenskra heimila vegna heilbrigðisþjónustu hafi í heild ekki hækkað á undanförnum árum er verulegur munur á útgjaldabyrðinni eftir samfélagshópum. Útgjaldahlutföll í ýmsum hópum Íslendinga eru há sem ógnað getur aðgengi að heilbrigðisþjónustunni. Í húfi er grundvallarmarkmið íslenska heilbrigðiskerfisins um sem jafnast aðgengi að þjónustunni. Lykilhugtök Bein heilbrigðisútgjöld, samfélagshópar, notkun heilbrigðisþjónustu, aðgengi að heilbrigðisþjónustu
Zitieren
APA
Vilhjálmsson, R. (2024). Bein útgjöld og útgjaldabyrði heimilanna vegna heilbrigðisþjónustu. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.3.1
Vancouver
Vilhjálmsson R. Bein útgjöld og útgjaldabyrði heimilanna vegna heilbrigðisþjónustu. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.3.1
BibTeX
@article{Vilhjlmsson2024,
author = {Vilhjálmsson, Rúnar},
title = {Bein útgjöld og útgjaldabyrði heimilanna vegna heilbrigðisþjónustu},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2024},
doi = {10.33112/th.100.3.1}
}
EUVIMED