Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024
DOI: 10.33112/th.100.2.5 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Sandra Ásgrímsdóttir und 3 weiteren Autor:innen.
Abstract (Originalsprache)
Bakgrunnur Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef mannfjöldaspár ganga eftir. Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið álag á heilbrigðiskerfið. Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu hefur lítið verið rannsakað en ef næringarþörf þessa viðkvæma hóps er mætt má mögulega stuðla að auknum lífsgæðum, minni þjónustuþörf, færri legudögum á sjúkrahúsum og ótímabærum búferlaflutningi á öldrunarheimili. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni sem fá þjónustu frá heimahjúkrun Heilbrigðistofnunar Norðurlands (HSN). Aðferð Rannsóknin var þversniðsrannsókn. Heimahjúkrun skimaði skjólstæðinga sína (n=193), ≥65 ára í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni í mars 2022 með matstækinu „Mat á áhættu fyrir vannæringu“ sem finnst í Sögu sjúkraskrá. Skimunin gefur skjólstæðingunum stig (0-30) eftir því hve mikil áhættan er talin vera á vannæringu, þar sem hærri stig lýsa meiri áhættu. Við skimun þarf að skrá hæð og þyngd, skoða þyngdarsögu m.t.t. þyngdartaps, svara spurningum um t.d. ógleði, uppköst og niðurgang, erfiðleika við að kyngja eða tyggja, nýlega sjúkrahúslegu og aðgerð. Í lok skimunar gefur matstækið stig eftir svörum skjólstæðingsins. Niðurstöður Miðgildi aldurs var 84 ár (IQR:10), miðgildi þyngdar 79 kg (IQR:24) og miðgildi líkamsþyngdarstuðuls (LÞS (kg/m2) 27,5 (IQR:7,5). Í heild voru 4% með LÞS
Zitieren
APA
Ásgrímsdóttir, S., Sigurðardóttir, Á., Blöndal, B., & Hrólfsdóttir, L. (2024). Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.2.5
Vancouver
Ásgrímsdóttir S, Sigurðardóttir Á, Blöndal B, Hrólfsdóttir L. Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.2.5
BibTeX
@article{sgrmsdttir2024,
author = {Ásgrímsdóttir, Sandra and Sigurðardóttir, Árún and Blöndal, Berglind and Hrólfsdóttir, Laufey},
title = {Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni},
journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
year = {2024},
doi = {10.33112/th.100.2.5}
}
EUVIMED