EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Tímalengd föstu og undirbúningur aðgerðar hjá 67 ára og eldri á Landspítala vegna mjaðmabrots: Lýsandi afturvirk rannsókn

Þuríður Geirsdóttir, Árún Kristín Sigurðardóttir, Lára Borg Ásmundsdóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2024

DOI: 10.33112/th.100.1.5 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2024. Verfasst von Þuríður Geirsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Áætlað er að 18% kvenna og 6% karla mjaðmabrotni á efri árum. Mjaðmabrot geta orsakað mikla færniskerðingu og breytingu á högum eldra fólks. Fasta fyrir skurðaðgerð er nauðsynlegur undirbúningur aðgerðar en rannsóknir hafa sýnt að föstutími er of langur og bið eftir að komast í aðgerð er að lengjast. Mikilvægt er að huga að næringu hjá eldra fólki fyrir aðgerð til að koma í veg fyrir fylgikvilla. Tilgangur rannsóknarinnar var að greina hvernig undirbúningi og föstu var háttað hjá 67 ára og eldri sem mjaðmabrotnuðu og fóru í aðgerð á Landspítala árið 2021. Einnig að skoða hvaða meðferðir voru veittar á biðtíma eftir aðgerð og hvort mismunur væri milli aldurshópa á veittum meðferðum og hvaða þættir tengjast lengd föstu á tæra drykki. Aðferð Megindleg afturvirk gagnarannsókn, þar sem gögn um sjúklinga 67 ára og eldri, sem mjaðmabrotnuðu og fóru í aðgerð á Landspítala á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2021 voru greind. Niðurstöður Sjúklingar voru 144 talsins, meðalaldur var 82,1 ár (sf ±8,18). Biðtími eftir aðgerð var að meðaltali 30 klst. (sf ±19,6) og meðalföstutími var 13 klst. (sf ± 5,21). Vegna ófyrirséðra aðstæðna þurftu 40% að fasta tvo daga í röð. Fjörutíu prósent höfðu óráðseinkenni fyrir aðgerð sem voru algengari hjá ≥80 ára (n=83) miðað við þá sem voru ≤79 ára (n=61) p=0,038. Mat á næringarástandi var framkvæmt hjá 14,6% sjúklinga fyrir aðgerð en skráningu var oft ábótavant. Aðhvarfsgreining sýndi að lengri fasta á tæra drykki fyrir aðgerð tengdist meiri notum á næringardrykkjum og að hærri aldur dró úr lengd föstu (p=0,001). Ályktun Stytta þarf föstutíma þessa hóps fyrir aðgerð. Leggja þarf áherslu á að stytta biðtíma eftir aðgerð til að koma í veg fyrir fylgikvilla hjá eldra fólki sem mjaðmabrotnar. Huga þarf betur að næringu, líkamlegri, félagslegri og andlegri virkni á biðtíma til að auka vellíðan og fyrirbyggja fylgikvilla í kjölfar aðgerðar. Leggja þarf áherslu á að bæta hjúkrunarskráningu.

Zitieren

APA

Geirsdóttir, Þ., Sigurðardóttir, Á. K., & Ásmundsdóttir, L. B. (2024). Tímalengd föstu og undirbúningur aðgerðar hjá 67 ára og eldri á Landspítala vegna mjaðmabrots: Lýsandi afturvirk rannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.100.1.5

Vancouver

Geirsdóttir Þ, Sigurðardóttir ÁK, Ásmundsdóttir LB. Tímalengd föstu og undirbúningur aðgerðar hjá 67 ára og eldri á Landspítala vegna mjaðmabrots: Lýsandi afturvirk rannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2024. doi:10.33112/th.100.1.5

BibTeX
@article{Geirsdttir2024,
  author = {Geirsdóttir, Þuríður and Sigurðardóttir, Árún Kristín and Ásmundsdóttir, Lára Borg},
  title = {Tímalengd föstu og undirbúningur aðgerðar hjá 67 ára og eldri á Landspítala vegna mjaðmabrots: Lýsandi afturvirk rannsókn},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2024},
  doi = {10.33112/th.100.1.5}
}
Kostenlos starten →