EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Heilsulæsi fólks með kransæðasjúkdóma: Þversniðsrannsókn

Brynja Ingadóttir, Bettý Grímsdóttir, Margrét Svavarsdóttir

Tímarit hjúkrunarfræðinga · 2025

DOI: 10.33112/th.0101.3.4 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit hjúkrunarfræðinga, 2025. Verfasst von Brynja Ingadóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Tilgangur Að lýsa heilsulæsi einstaklinga með kransæðasjúkdóm og greina tengsl heilsulæsis við valda áhættuþætti sjúkdómsins og bakgrunn þátttakenda. Aðferð Í þessari þversniðsrannsókn voru þátttakendur sjúklingar sem lögðust inn á Landspítala eða Sjúkrahúsið á Akureyri með brátt kransæðaheilkenni, bráða kransæðastíflu, vegna kransæðavíkkunar eða kransæðahjáveituaðgerðar. Gagna var aflað á árunum 2017- 2019 úr sjúkraskrám og með spurningalistum og líkamsmælingum sex mánuðum eftir útskrift af sjúkrahúsi. Heilsulæsi var metið með Evrópska heilsulæsisspurningalistanum (The European Health Literacy Questionnaire-HLS-EU-Q16-IS) sem inniheldur 16 spurningar (stig 0-16) og er heilsulæsi flokkað í fullnægjandi (13-16 stig), takmarkað (9-12 stig) og ófullnægjandi (0-8 stig). Undirflokkar spurningalistans eru Heilbrigðisþjónusta, Fyrirbygging sjúkdóma og Heilsuefling, hver með möguleg skor 1-4 og hærra skor þýðir verra heilsulæsi. Hreyfing, einkenni kvíða og þunglyndis, sjúkdómstengd þekking og trú á eigin getu til sjálfsumönnunar voru metin með spurningalistum. Gögn voru greind með lýsandi og greinandi tölfræði. Notað var fjölþátta almennt samlagningarlíkan til að kanna tengsl milli valinna fylgibreyta og heilsulæsis. Niðurstöður Nærri þriðjungur (29%) þátttakenda (N=343, meðalaldur 64 ár (sf 8,8), 81% karlar) var með takmarkað eða ófullnægjandi heilsulæsi. Auðveldast þótti þátttakendum að skilja leiðbeiningar læknis eða lyfjafræðings en erfiðast að nota upplýsingar úr fjölmiðlum til að fyrirbyggja veikindi. Trú á eigin getu til sjálfsumönnunar, sjúkdómstengd þekking og kvíði tengdust marktækt heilsulæsi. Ályktanir Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að um þriðjungur einstaklinga með kransæðasjúkdóm sé með takmarkað eða ófullnægjandi heilsulæsi. Með því að veita einstaklingshæfða hjúkrunarmeðferð sem miðar að því að auka þekkingu sjúklinga, efla trú þeirra á eigin getu og bæta andlega líðan, geta hjúkrunarfræðingar stuðlað að auknu heilsulæsi einstaklinga með kransæðasjúkdóm. Slík meðferð styrkir getu sjúklinga til að taka upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu og sjálfsumönnun. Heilbrigðisstofnanir geta lagt sitt af mörkum með því að bæta samskipti og fræðslu og aðgengi að áreiðanlegu og vönduðu fræðsluefni sem kemur til móts við þarfir fólks óháð heilsulæsi. Lykilorð Áhættuþættir hjartasjúkdóma, heilsulæsi, kransæðasjúkdómur, sjúklingafræðsla, trú á eigin getu

Zitieren

APA

Ingadóttir, B., Grímsdóttir, B., & Svavarsdóttir, M. (2025). Heilsulæsi fólks með kransæðasjúkdóma: Þversniðsrannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga. https://doi.org/10.33112/th.0101.3.4

Vancouver

Ingadóttir B, Grímsdóttir B, Svavarsdóttir M. Heilsulæsi fólks með kransæðasjúkdóma: Þversniðsrannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga. 2025. doi:10.33112/th.0101.3.4

BibTeX
@article{Ingadttir2025,
  author = {Ingadóttir, Brynja and Grímsdóttir, Bettý and Svavarsdóttir, Margrét},
  title = {Heilsulæsi fólks með kransæðasjúkdóma: Þversniðsrannsókn},
  journal = {Tímarit hjúkrunarfræðinga},
  year = {2025},
  doi = {10.33112/th.0101.3.4}
}
Kostenlos starten →