„Jeg veit hjer um bil alt um þessa stefnu“
Ritið · 12.11.2026 · (2) · 135-179
DOI: 10.33112/ritid.26.2.7 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 12.11.2026. Verfasst von Benedikt Hjartarson. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Halldór Laxness vísaði oftar til súrrealisma en aðrir íslenskir höfundar á fyrri hluta tuttugustu aldar. Greinin varpar ljósi á lausbundinn skilning hans á súrrealismanum, sem hann leit síður á sem skipulega hreyfingu en sem stíl eða listræna tækni. Hugað er að því hvernig mörkin á milli súrrealisma og hreyfinga á borð við dada, expressjónisma og fútúrisma verða fljótandi í skrifum Halldórs. Greiningin á afstöðu hans til ismanna gengur út frá sundurleitum athugasemdum frá rúmlega hálfrar aldar tímabili, en megináhersla er lögð á skrif hans um eigin verk frá þriðja áratugnum. Á þeim tíma sendir hann frá sér Vefarann mikla frá Kasmír og ljóðin „Unglinginn í skóginum“ og „Rhodymenia palmata“, sem hann átti öll eftir að tengja við súrrealisma með einum eða öðrum hætti. Greinin sýnir hvernig afstaða Halldórs til súrrealismans og annarra isma var tvíbent allt frá upphafi. Hann leit svo á að súrrealismann skorti fágun, grundvallarhugsun og aga í úrvinnslu, þannig að stefnan bauð aldrei upp á raunhæfan valkost í hans augum. Frá síðari tíma sjónarhorni átti hann eftir að lýsa súrrealismanum sem barni síns tíma, tískubólu sem var í raun andvana fædd þótt hún hafi haft mótandi áhrif á verk hans í upphafi ferilsins. Í greininni er þeirri spurningu velt upp, að hvaða marki skrif Halldórs og afstaða hans til súrrealismans á upphafsárum fullveldisins eru lýsandi dæmi um verk höfundar á hinum menningarlega og landfræðilega jaðri.
Zitieren
APA
Hjartarson, B. (2026). „Jeg veit hjer um bil alt um þessa stefnu“. Ritið, 135-179. https://doi.org/10.33112/ritid.26.2.7
Vancouver
Hjartarson B. „Jeg veit hjer um bil alt um þessa stefnu“. Ritið. 2026:135-179. doi:10.33112/ritid.26.2.7
BibTeX
@article{Hjartarson2026,
author = {Hjartarson, Benedikt},
title = {„Jeg veit hjer um bil alt um þessa stefnu“},
journal = {Ritið},
year = {2026},
number = {2},
pages = {135--179},
doi = {10.33112/ritid.26.2.7}
}
EUVIMED