EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Hið yfirnáttúrulega ljósbrot

Æsa Sigurjónsdóttir

Ritið · 12.11.2026 · (2) · 105-133

DOI: 10.33112/ritid.26.2.6 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 12.11.2026. Verfasst von Æsa Sigurjónsdóttir. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Rannsóknir á áhuga súrrealista á kristöllum hafa einkum leitast við að skýra hann með vísan til alkemíu, dulspeki og náttúruspeki rómantíkurinnar, en látið eðlisfræði kristallanna sjálfra liggja milli hluta. Í þessari grein er sjónum beint að silfurbergi og kannað hvernig André Breton virkjaði efnislega og rúmfræðilega eiginleika silfurbergsins – tvíbrotið og skáteningslaga kristöllun þess – til að móta kenningu sína um hið yfirnáttúrulega (fr. le merveilleux) sem er grundvallarhugtak að baki hugsun hans um hina krampakenndu fegurð (fr. la beauté convulsive). Með því að rekja margbrotin orðræðutengsl súrrealismans við vísindasögu kristallanna er dregið fram hvernig Breton nýtir tvíbrot steindarinnar sem kröftuga myndhverfingu hins yfirnáttúrulega, tilfinningu sem var erótísk forsenda hinnar krampakenndu fegurðar. Sýnt er hvernig leit Bretons að hinu yfirnáttúrulega birtist í ráfi um ólík þekkingarsvið: skáldskap, bókmenntir, náttúruvísindi, listir og ljósmyndun. Einnig er rætt hvort kristallinn sé hluti af fagurfræði hins úrelta eða standi sem fullkomin lærdómur í „konungsríki skynjunarinnar“ (fr. royauté sensible). Þannig er sýnt fram á hvernig ljósbrotið upphefur þann súrrealíska veruleika sem Breton taldi æðsta markmið sköpunarinnar.

Zitieren

APA

Sigurjónsdóttir, Æ. (2026). Hið yfirnáttúrulega ljósbrot. Ritið, 105-133. https://doi.org/10.33112/ritid.26.2.6

Vancouver

Sigurjónsdóttir Æ. Hið yfirnáttúrulega ljósbrot. Ritið. 2026:105-133. doi:10.33112/ritid.26.2.6

BibTeX
@article{Sigurjnsdttir2026,
  author = {Sigurjónsdóttir, Æsa},
  title = {Hið yfirnáttúrulega ljósbrot},
  journal = {Ritið},
  year = {2026},
  number = {2},
  pages = {105--133},
  doi = {10.33112/ritid.26.2.6}
}
Kostenlos starten →