Rannsóknastofa og stuldur
Ritið · 12.11.2026 · (2) · 81-104
DOI: 10.33112/ritid.26.2.5 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 12.11.2026. Verfasst von Sami Sjöberg. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Greinin beinir sjónum að sérstæðu samspili tilrauna og niðurrifs í belgíska súrrealismanum. Í forgrunni eru verk helsta leiðtoga hópsins, Pauls Nougé (1895–1967), og gagnrýni hans á ósjálfráð skrif. Nougé mótaði frumlega aðferð sem spyrti vísindakennda rannsókn á skáldlegu tungumáli saman við nýstárlega tækni sem ætlað var að grafa undan vanabundnu tungumáli, frásagnarformgerðum og merkingunni sem slíkri. Þessari tvennd má lýsa með undirstöðuhugtökunum „rannsóknastofa“ og „stuldur“. Fyrra hugtakið vísar til kerfisbundinnar könnunar á hugarástandi og skáldlegum formum, þar sem gjarnan var byggt á vísindalegum aðferðum athugunar og umbreytingar. „Stuldurinn“ líkamnaðist aftur á móti í beinni notkun á klippitækni, skopstælingum og því sem síðar var kallað „umsnúningur“, þar sem sígild bókmenntaverk, hversdagsmál og venjulegir munir voru stæld í því augnamiði að afhjúpa spennu sem væri í senn efnisleg og félagsleg og þar með til þess fallin að koma róti á borgaralegar hefðir og venjur. Með nákvæmum lestri og samanburði kannar greinin hvernig belgísku súrrealistarnir smíðuðu skáldleg brot sem virkuðu ekki aðeins sem bókmenntaverk heldur einnig sem hugmyndatilraunir, sem ætlað var að ögra, koma á óvart og leiða í ljós undirliggjandi tengsl og þverstæður. Leidd eru rök að því að þessi skáldlega tilraunastarfsemi hafi aðgreint belgíska súrrealismann frá þeim franska og skilgreint hann sem vettvang leikrænna og pólitískt innblásinna tilrauna, sem rekja má til kommúnisma og að hluta til anarkisma. Með því að beina athyglinni að þessum aðferðum varpar greinin ljósi á sérstætt framlag belgíska súrrealismans til framúrstefnunnar og varanleg áhrif hans á skáldskaparfræði tuttugustu aldar um leið og hún sýnir hvernig hreyfingin lét stöðugt reyna á mörkin á milli listsköpunar, róttækrar pólitíkur og frumleika.
Zitieren
APA
Sjöberg, S. (2026). Rannsóknastofa og stuldur. Ritið, 81-104. https://doi.org/10.33112/ritid.26.2.5
Vancouver
Sjöberg S. Rannsóknastofa og stuldur. Ritið. 2026:81-104. doi:10.33112/ritid.26.2.5
BibTeX
@article{Sjberg2026,
author = {Sjöberg, Sami},
title = {Rannsóknastofa og stuldur},
journal = {Ritið},
year = {2026},
number = {2},
pages = {81--104},
doi = {10.33112/ritid.26.2.5}
}
EUVIMED