Uppstoppaður flanari
Ritið · 12.11.2026 · (2) · 37-61
DOI: 10.33112/ritid.26.2.3 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 12.11.2026. Verfasst von Jaewuk Kim. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Þessi grein endurskoðar gríðarlegt mikilvægi súrrealismans fyrir mótun módernískra bókmennta í Kóreu á tímum nýlenduyfirráða Japans (1910–1945) með því að rannsaka valinkunna móderníska rithöfunda á borð við Yi Sang (1910–1937), Kim Ki-rim, og aðila að kóreska súrrealíska tímaritinu 34 bókmenntir (Samsa munhak, 1934–35). Hvernig var súrrealismi – með fagurfræði svefnsins, ósjálfráðum skrifum og ósamkvæmum hlið setningum – móttekinn og aðlagaður í nýlendunni Kóreu? Af hverju skipti súrrealismi máli fyrir Yi Sang og bókmenntalegar tilraunir hans? Á hvaða hátt var súrrealismi á nýlendutíma Kóreu áþekkur eða frábrugðinn frönskum súrrealisma? Í fyrsta hluta greinarinnar er gerð stuttlega grein fyrir lífshlaupi Yi Sangs og hvernig súrrealisminn var skilinn og iðkaður á nýlendutíma Kóreu fyrir tilstuðlan Yi Sangs, Kim Ki-rims og meðlima 34 bókmenntir. megingreiningin snýr að smásögu Yi Sangs, „Vængir“ („Nalgae“, 1936) og hvernig höfundur truflar hlutverk flanarans og hreyfanleika á milli rýma (e. spatial mobility) við aðstæður nýlenduveruleikans. Söguhetjan ferðast í huga sínum í gegnum mismunandi lög af ósamkvæmum veruleikum og kannar möguleikann á virkni annars konar rökvísi. Þrátt fyrir að áhrif súrrealismans á japanska módernista á þriðja og fjórða áratugnum séu vel þekkt, er minna vitað um hvernig súrrealisminn átti alþjóðlega innreið sína á nýlendutíma Kóreu, þar sem hann var valdeflandi fyrir höfunda og listamenn og hvatti þá til leiks og tilrauna með nýjar framsetningar á veruleikanum. Ég lýk greininni með því að huga að varanlegum áhrifum súrrealisma nýlendutímans á suður-kóreskar bókmenntir eftirstríðsáranna og eftirlendutímans.
Zitieren
APA
Kim, J. (2026). Uppstoppaður flanari. Ritið, 37-61. https://doi.org/10.33112/ritid.26.2.3
Vancouver
Kim J. Uppstoppaður flanari. Ritið. 2026:37-61. doi:10.33112/ritid.26.2.3
BibTeX
@article{Kim2026,
author = {Kim, Jaewuk},
title = {Uppstoppaður flanari},
journal = {Ritið},
year = {2026},
number = {2},
pages = {37--61},
doi = {10.33112/ritid.26.2.3}
}
EUVIMED