EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Breytileiki í framburði í íslensku táknmáli

Guðný Björk Þorvaldsdóttir, Rannveig Sverrisdóttir

Ritið · 29.04.2026 · (1) · 163-190

DOI: 10.33112/ritid.26.1.7 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, online erschienen am 29.04.2026. Verfasst von Guðný Björk Þorvaldsdóttir und 1 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Greinin fjallar um breytileika í myndun handforma í íslensku táknmáli (ÍTM), með áherslu á bendingar og sérstaklega persónufornöfn. Hljóðkerfislegar grunnbreytur tákna eru útskýrðar; handform, hreyfing, myndunarstaður, afstaða og látbrigði og fjallað um hvernig innri uppbygging handforma, þ.e. valdir fingur, fingrastaða og staða þumals, getur verið breytileg án þess að breyta merkingu tákns. Í rannsókninni er kannað hvort og hvernig framburðartilbrigði birtast í ÍTM. Gögnin sem greind voru samanstanda af 50 dæmum um handform í bendingum sem og handform í táknum á undan þeim og eftir. Gögnin koma úr sex myndböndum með samtölum og frásögnum sex táknara. Niðurstöðurnar sýna fimm handform sem birtast í bendingum: Grunnmyndina (vísi-handform, mynd í einum eða fleiri þáttum,) og fjögur tilbrigði sem víkja frá grunnmynd í einum eða fleiri þáttum. Rannsóknin leiðir í ljós að tilbrigði voru mun algengari í 1. persónufornöfnum ein tölu en í öðrum bendingum og er ástæðan fyrir því sú, að hún er talin greinileg og því leyfast tilbrigði frekar. Algengast var að fingur væru með beygju á grunnlið og tengist það tilvísandi afstöðu táknsins, þ.e. þegar vísað er til táknara sjálfs krefst myndun táknsins minni áreynslu ef grunnliðir eru beygðir. Einnig kom flathönd oft fyrir í 1.p.fn.et. og virðist val á henni tengjast samlögun við handform í næsta umhverfi, einkum fjölda val inna fingra. Í bendingum sem vísa út í rýmið (ekki-fyrstu persónu) komu mun færri til brigði fram og engin í staðaratviksorðum. Þetta rímar við erlendar rannsóknir sem hafa sýnt að meiri breytileiki er bundinn við 1.p.fn.et. en aðrar bendingar. Niðurstaða greinarinnar er sú að framburðartilbrigði eru til staðar í ÍTM, einkum í 1.p.fn.et. og að bæði líkamlegar og hljóðkerfislegar ástæður skýra val tilbrigða. Stærri rannsókn gæti varpað frekara ljósi á umfang breytileika í handformum og hvort félagslegir þættir stýri vali á tilbrigðum.

Zitieren

APA

Þorvaldsdóttir, G. B., & Sverrisdóttir, R. (2026). Breytileiki í framburði í íslensku táknmáli. Ritið, 163-190. https://doi.org/10.33112/ritid.26.1.7

Vancouver

Þorvaldsdóttir GB, Sverrisdóttir R. Breytileiki í framburði í íslensku táknmáli. Ritið. 2026:163-190. doi:10.33112/ritid.26.1.7

BibTeX
@article{orvaldsdttir2026,
  author = {Þorvaldsdóttir, Guðný Björk and Sverrisdóttir, Rannveig},
  title = {Breytileiki í framburði í íslensku táknmáli},
  journal = {Ritið},
  year = {2026},
  number = {1},
  pages = {163--190},
  doi = {10.33112/ritid.26.1.7}
}
Kostenlos starten →