„Fyrir þá, sem vilja kynna sér jafnaðarstefnuna er bók þessi góð byrjun ...“: Íslandssaga The Jungle eftir Upton Sinclair í fjórum þáttum
Ritið · 2024 · 24 (2)
DOI: 10.33112/ritid.24.2.8 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, 2024. Verfasst von Haukur Ingvarsson.
Abstract (Originalsprache)
Árið 1905 tók skáldsaga bandaríska rithöfundarins Uptons Sinclairs The Jungle að birtast sem framhaldssaga á síðum sósíalíska vikublaðsins Appeal to Reason. Sagan varpaði ljósi á illan aðbúnað verkafólks og vafasama starfshætti í sláturhúsum Chicago-borgar þar sem meirihlutinn af niðursoðnu kjöti í Bandaríkjunum var framleiddur. Sagan vakti þjóðarathygli og brátt heimsathygli því hún var þýdd á fjölda tungumála á næstu misserum. Árið 1914 kom hún út á Íslandi í þýðingu barnakennarans Páls Bjarnasonar á vegum fjelags eins á Stokkseyri. Í greininni er horft á fjögur spor sem marka inngöngu Sinclairs og The Jungle í íslenska bókmenntakerfið. Viðtökusagan er sett í samfélags-pólitískt og atvinnusögulegt samhengi með áherslu á nútímavæðingu íslensks samfélags er fylgdi tækni- og iðnbyltingu til sjávar og sveita. Jafnframt er sett fram sú tilgáta að skáldsaga Sinclairs hafi verið þýdd og gefin út hér á landi til að vara við þéttbýlismyndun, jafnaðarmennsku og stéttabaráttu, en hafi að lokum fallið í frjóan jarðveg hjá íslensku vinstrihreyfingunni þegar skipulag komst á starfsemi hennar um miðjan annan áratug síðustu aldar og pólitísk sjálfsmynd íslenskrar alþýðu var tekin að mótast.
Zitieren
APA
Ingvarsson, H. (2024). „Fyrir þá, sem vilja kynna sér jafnaðarstefnuna er bók þessi góð byrjun ...“: Íslandssaga The Jungle eftir Upton Sinclair í fjórum þáttum. Ritið, 24(2). https://doi.org/10.33112/ritid.24.2.8
Vancouver
Ingvarsson H. „Fyrir þá, sem vilja kynna sér jafnaðarstefnuna er bók þessi góð byrjun ...“: Íslandssaga The Jungle eftir Upton Sinclair í fjórum þáttum. Ritið. 2024;24(2). doi:10.33112/ritid.24.2.8
BibTeX
@article{Ingvarsson2024,
author = {Ingvarsson, Haukur},
title = {„Fyrir þá, sem vilja kynna sér jafnaðarstefnuna er bók þessi góð byrjun ...“: Íslandssaga The Jungle eftir Upton Sinclair í fjórum þáttum},
journal = {Ritið},
year = {2024},
volume = {24},
number = {2},
doi = {10.33112/ritid.24.2.8}
}
EUVIMED