Litla Hollywood í Hafnarfirði: Staðmiðaður lesháttur og íslensk kvikmyndagerð á upphafsárum lýðveldisins
Ritið · 2024 · 24 (2)
DOI: 10.33112/ritid.24.2.12 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, 2024. Verfasst von Björn Þór Vilhjálmsson.
Abstract (Originalsprache)
Í þessari grein er fjallað um lítt þekkt kvikmyndaumsvif Ásgeirs Long og Valgarðs Runólfssonar á sjötta áratug síðustu aldar. Þá sendu þeir frá sér annars vegar stuttmyndina Tunglið, tunglið taktu mig og svo hins vegar tíðarandaaðlögun á þjóðsagnaævintýrinu Gilitrutt, en síðarnefnda myndin var í fullri lengd og að hluta í lit. Fyrrnefnda stuttmyndin getur talist fyrsta íslenska vísindaskáldskaparmyndin, en hún segir frá ferðalagi til tunglsins í geimflaug. Þegar þangað er komið hittir geimfarinn Karlinn í tunglinu fyrir og lendir í kjölfarið í klóm ógnvænlegs köngulóarskrýmslis. Gilitrutt fjallar um bóndahjón sem lenda í útistöðum við tröllskessu sem býr í nálægu fjalli og sleppa með skrekkinn. Kvikmyndaaðlögunin er að mestu leyti trú þjóðsögunni, en nokkrar þungvægar breytingar eru þó gerðar og um þær er fjallað í greininni. Kvikmyndirnar eru báðar skoðaðar í ljósi frásagnaraðferðar, tæknilegrar umgjarðar, sjónrænnar áferðar og menningarlegra skírskotana, auk þess sem kvikmyndastarf Ásgeirs og Valgarðs er sett í sögulegt samhengi. Þá er sett fram viðtökufræðileg kenning um staðmiðaðan leshátt fyrir íslenskar kvikmyndir á tímabilinu fyrir stofnun Kvikmyndasjóðs, en viðmiðin fyrir slíkan leshátt eru skýrð með tilvísun til fræðaskrifa um kvikmyndagerð smáþjóða.
Zitieren
APA
Vilhjálmsson, B. Þ. (2024). Litla Hollywood í Hafnarfirði: Staðmiðaður lesháttur og íslensk kvikmyndagerð á upphafsárum lýðveldisins. Ritið, 24(2). https://doi.org/10.33112/ritid.24.2.12
Vancouver
Vilhjálmsson BÞ. Litla Hollywood í Hafnarfirði: Staðmiðaður lesháttur og íslensk kvikmyndagerð á upphafsárum lýðveldisins. Ritið. 2024;24(2). doi:10.33112/ritid.24.2.12
BibTeX
@article{Vilhjlmsson2024,
author = {Vilhjálmsson, Björn Þór},
title = {Litla Hollywood í Hafnarfirði: Staðmiðaður lesháttur og íslensk kvikmyndagerð á upphafsárum lýðveldisins},
journal = {Ritið},
year = {2024},
volume = {24},
number = {2},
doi = {10.33112/ritid.24.2.12}
}
EUVIMED