EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Hvernig undirbúa táknmálstúlkar sig fyrir túlkaverkefni?

Hólmfríður Þóroddsdóttir

Ritið · 2024-04 · 24 (1)

DOI: 10.33112/ritid.24.1.8 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, 2024-04. Verfasst von Hólmfríður Þóroddsdóttir.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Greinin sem hér birtist fjallar um táknmálstúlkun og áhrif undirbúnings á gæði táknmálstúlkunar. Sérstaklega er fjallað um hvernig táknmálstúlkar undirbúa sig fyrir verkefni sín og hvað þeir telja sig þurfa að undirbúa öðru fremur. Þátttakendur í rannsókninni voru starfandi táknmálstúlkar á Íslandi. Rannsóknin var unnin með blönduðum rannsóknaraðferðum, þar sem nýtt voru viðtöl, þátttökuathuganir og spurningakönnun, auk þess sem hluti þátttakenda tók þátt í sérhönnuðu túlkunarprófi. Prófið var framkvæmt til að ná fram tölfræðilegum upplýsingum um áhrif undirbúnings á táknmálstúlkun og fá túlkana sjálfa til að lýsa undirbúningi sínum og greina þætti sem mikilvægt er að undirbúa fyrir túlkun. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á að undirbúningur bæði eykur skilning túlkanna á umræðuefninu sem túlka á og auðveldar þeim framsetningu túlkunarinnar. Fjallað er almennt um undirbúning táknmálstúlka, en einnig er farið nánar í gegnum nokkur atriði sem þátttakendur segja að þurfi að hafa í huga við undirbúninginn, það er málfræðileg atriði, umræðuefni, sérstök málsnið, raddtúlkun og aðstæður. Undirbúningur gefur túlkunum tækifæri til að auka skilning sinn á því sem rætt verður um og takast á við vandamál sem upp geta komið í framsetningu túlkunarinnar. Hann varnar því einnig að þeir dragist aftur úr í túlkun sinni eða að eitthvað komi þeim á óvart. Þetta léttir á hugrænu álagi túlkanna þegar í túlkunaraðstæðurnar er komið, sem leiðir til betri túlkunar.

Zitieren

APA

Þóroddsdóttir, H. (2024). Hvernig undirbúa táknmálstúlkar sig fyrir túlkaverkefni?. Ritið, 24(1). https://doi.org/10.33112/ritid.24.1.8

Vancouver

Þóroddsdóttir H. Hvernig undirbúa táknmálstúlkar sig fyrir túlkaverkefni?. Ritið. 2024;24(1). doi:10.33112/ritid.24.1.8

BibTeX
@article{roddsdttir2024,
  author = {Þóroddsdóttir, Hólmfríður},
  title = {Hvernig undirbúa táknmálstúlkar sig fyrir túlkaverkefni?},
  journal = {Ritið},
  year = {2024},
  volume = {24},
  number = {1},
  doi = {10.33112/ritid.24.1.8}
}
Kostenlos starten →