EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Lausamennskutilskipunin 1783: Tilurð og texti

Már Jónsson

Ritið · 2024-04 · 24 (1)

DOI: 10.33112/ritid.24.1.2 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Ritið, 2024-04. Verfasst von Már Jónsson.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Greinin er framlag til rannsókna á vinnulöggjöf á Íslandi. Með tilskipun konungs um lausamenn frá 19. febrúar 1783 var afnumin sú heimild húsagatilskipunar frá 1746 að einstaklingar sem ættu tiltekna lágmarkseign gætu unnið fyrir sér án þess að vera vistráðnir hjá bændum. Reyndar var enn gert ráð fyrir því að hægt væri, gegn ströngum skilmálum, að fá tímabundið leyfi hjá sýslumönnum til að vera í lausamennsku, einkum við sjávarsíðuna. Í greininni er rakin umræða embættismanna um þetta málefni á áttunda áratug 18. aldar og grafist fyrir um það hvernig tilskipunin sjálf varð til í samhengi við aðra löggjöf sem laut að því að hafa hemil á íslenskri alþýðu. Í viðauka eru gefnir út lykiltextar, þar á meðal tilskipunin sjálf á dönsku og í tveimur samtíðarþýðingum á íslensku. Ljóst má vera að löglegir lausamenn voru sárafáir, bæði áður en tilskipunin tók gildi og næstu áratugina, en þeim mun fleiri voru þeir einstaklingar, einkum karlar, sem vildu vera lausir en máttu það ekki samkvæmt lögum. Yfirvöld gerðu hvað þau gátu til að hemja slík tilþrif en höfðu sjaldnast erindi sem erfiði. Helsta niðurstaða greinarinnar er að lausamennskutilskipunin 1783 hafi litlu breytt á vinnumarkaði og að áhrif hennar á atvinnuhætti landsmanna og efnahag landsins hafi verið ofmetin.

Zitieren

APA

Jónsson, M. (2024). Lausamennskutilskipunin 1783: Tilurð og texti. Ritið, 24(1). https://doi.org/10.33112/ritid.24.1.2

Vancouver

Jónsson M. Lausamennskutilskipunin 1783: Tilurð og texti. Ritið. 2024;24(1). doi:10.33112/ritid.24.1.2

BibTeX
@article{Jnsson2024,
  author = {Jónsson, Már},
  title = {Lausamennskutilskipunin 1783: Tilurð og texti},
  journal = {Ritið},
  year = {2024},
  volume = {24},
  number = {1},
  doi = {10.33112/ritid.24.1.2}
}
Kostenlos starten →