EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Frá ritstjórum

Erla Erlendsdóttir, Oddný Guðrún Sverrisdóttir

Milli Mála · 17.12.2025 · 17 (1) · 7-8

DOI: 10.33112/millimala.17.1.1 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Milli Mála, online erschienen am 17.12.2025. Verfasst von Erla Erlendsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitieren

Abstract (Originalsprache)

Notkun orðasambanda í ræðu og riti auðga tunguna og gera hana blæbrigðaríka og kjarnmikla. Að undanförnu hafa sjónir beinst æ meir að því sviði málvísinda sem lúta að (föstum) orðasamböndum og er óhætt að fullyrða að mikil gróska hafi verið í rannsóknum fræðimanna um eiginleika, formgerðir, myndmál og flokkun fastra orðasambanda, gildi þeirra sem hluta af orðaforða tungumálsins, sem og mikilvægi í kennslu og námi erlendra tungumála. Föst orðasambönd eru tvö eða fleiri orð sem standa saman og mynda merkingarbæra heild. Mörg eru notuð í málsamfélaginu líkt og um eitt orð væri að ræða, og oft eru þau í yfirfærðri merkingu. Sem dæmi má nefna leggjast undir feld í merkingunni ‚íhuga lausn á vandamáli í einrúmi‘, hitta naglann á höfuðið ‚hafa á réttu að standa‘, og bæta gráu ofan á svart ‚gera illt verra‘. Frá árinu 2022 er Rannsóknastofa í orðasambandafræði (RÍÓ) starfrækt við Háskóla Íslands. Hún heyrir undir Hugvísindasvið og starfar innan vébanda Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Rannsóknastofan er vettvangur fyrir fræðimenn og áhugafólk um orðasambandafræði. Markmið hennar eru meðal annars að vera vettvangur fyrir rannsóknir á sviði orðasambandafræði og beita sér fyrir útgáfu efnis um fræðin.

Zitieren

APA

Erlendsdóttir, E., & Sverrisdóttir, O. G. (2025). Frá ritstjórum. Milli Mála, 17(1), 7-8. https://doi.org/10.33112/millimala.17.1.1

Vancouver

Erlendsdóttir E, Sverrisdóttir OG. Frá ritstjórum. Milli Mála. 2025;17(1):7-8. doi:10.33112/millimala.17.1.1

BibTeX
@article{Erlendsdttir2025,
  author = {Erlendsdóttir, Erla and Sverrisdóttir, Oddný Guðrún},
  title = {Frá ritstjórum},
  journal = {Milli Mála},
  year = {2025},
  volume = {17},
  number = {1},
  pages = {7--8},
  doi = {10.33112/millimala.17.1.1}
}
Kostenlos starten →