Útópía í ójöfnum heimiHinseginleiki í Star Trek
Íslenska þjóðfélagið · 2025
DOI: 10.33112/isthjod.16.2.4 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Íslenska þjóðfélagið, 2025. Verfasst von Sveinn Guðmundsson. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY-NC-SA 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Star Trek sjónvarpsþættirnir hafa í meira en hálfa öld tekist á við málefni sem viðkvæmt hefur verið að fjalla um í sjónvarpi (Heath og Carlisle, 2020). Star Trek heimurinn, settur fram í geimsápuóperustíl í fjarlægri framtíð, hefur frá upphafi fagnað fjölbreytileika mannlegrar tilveru og sýnt jákvæða mynd af framtíð mannkynsins (Kozinets, 2001; Mittermeier og Spychala, 2020). Í greininni verður rýnt í ólíkar birtingarmyndir hinseginleikans í þáttunum í gegnum tíðina og upplifanir hinsegin, trans og kynsegin áhorfenda af þeim. Greinin byggir á etnógrafískri eigindlegri rannsókn en gagnaöflun fólst í viðtölum við íslenska hinsegin, trans og kynsegin Star Trek aðdáendur, þátttökuathugunum meðal þeirra og fjölmiðlagreiningu á skrifum um Star Trek og aðdáendur þáttanna í íslenskum miðlum. Í greininni verður aðaláhersla lögð á gögn úr viðtölunum. Niðurstöðurnar sýna hvernig Star Trek aðdáendurnir upplifa stemninguna sem myndast á ráðstefnum og öðrum hópsamkomum þeirra sem merki um virðingu fyrir fjölbreytileika og öruggt rými fyrir hinsegin fólk. Einnig sýna niðurstöðurnar hvernig þættirnir veita viðmælendunum von um jafnari framtíð með umræðu um samfélagsleg mál og jákvæðum birtingarmyndum ýmissa hópa eins og hinsegin, trans og kynsegin fólks sem kemur fram í þáttunum á ólíka vegu á ólíkum tímum.
Zitieren
APA
Guðmundsson, S. (2025). Útópía í ójöfnum heimiHinseginleiki í Star Trek. Íslenska þjóðfélagið. https://doi.org/10.33112/isthjod.16.2.4
Vancouver
Guðmundsson S. Útópía í ójöfnum heimiHinseginleiki í Star Trek. Íslenska þjóðfélagið. 2025. doi:10.33112/isthjod.16.2.4
BibTeX
@article{Gumundsson2025,
author = {Guðmundsson, Sveinn},
title = {Útópía í ójöfnum heimiHinseginleiki í Star Trek},
journal = {Íslenska þjóðfélagið},
year = {2025},
doi = {10.33112/isthjod.16.2.4}
}
EUVIMED