Virðing: Lykilþáttur í kynheilbrigði ungs fólks
Tímarit um uppeldi og menntun · 2020
DOI: 10.24270/tuuom.2019.28.11 ↗Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Tímarit um uppeldi og menntun, 2020. Verfasst von Sóley S. Bender. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).
Abstract (Originalsprache)
Í íslenskum og erlendum samfélögum bendir margt til þess að vanvirðingar gæti gagnvart kynverund einstaklingsins og er MeToo-byltingin dæmi um viðbragð við þeim vanda. Tilgangur þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hugtökin virðingu og vanvirðingu í sambandi við kynheilbrigði ungs fólks og út frá rétti þess til kynheilbrigðis. Gerð var endurgreining á tveimur eigindlegum rannsóknum sem byggðust á viðtölum við unga menn. Einnig var byggt á MeToo-frásögnum af kynferðisofbeldi gagnvart unglingsstúlkum. Gögnin voru greind út frá virðingu og vanvirðingu. Niðurstöður sýna að sjálfsvirðing er ungum karlmönnum mikilvæg í jafningjahópum en einnig við kaup og notkun smokka. Þeim finnst mikilvægt að virða samþykki hins aðilans og telja virðingu vera einn af lykilþáttum góðs kynlífs. Vanvirðing ungra manna birtist í umræðu um ráðandi karlmennsku en einnig þegar samþykki fyrir samförum er hunsað. Lýsingar á nauðgun unglingsstúlkna sýna fram á mikla vanvirðingu gagnvart rétti þeirra til kynheilbrigðis. Niðurstöðurnar benda til þess að virðing sé mikilvæg fyrir vellíðan einstaklingsins sem kynveru og hið gagnstæða gildi um vanvirðingu. Fræða þarf ungt fólk um rétt þess til kynheilbrigðis og um einkennandi þætti heilbrigðs kynferðislegs sambands.
Zitieren
APA
Bender, S. S. (2020). Virðing: Lykilþáttur í kynheilbrigði ungs fólks. Tímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/tuuom.2019.28.11
Vancouver
Bender SS. Virðing: Lykilþáttur í kynheilbrigði ungs fólks. Tímarit um uppeldi og menntun. 2020. doi:10.24270/tuuom.2019.28.11
BibTeX
@article{Bender2020,
author = {Bender, Sóley S.},
title = {Virðing: Lykilþáttur í kynheilbrigði ungs fólks},
journal = {Tímarit um uppeldi og menntun},
year = {2020},
doi = {10.24270/tuuom.2019.28.11}
}
EUVIMED