EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf

Anna Magnea Hreinsdóttir, Kristín Dýrfjörð

Netla · 29.05.2026

DOI: 10.24270/netla.2026/9 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 29.05.2026. Verfasst von Anna Magnea Hreinsdóttir und 1 weiteren Autor:innen. Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Markmið rannsóknarinnar sem fjallað er um í þessari grein voru annars vegar að varpa ljósi á starfshætti sem gera börnum kleift að stunda nám og leik í takt við eigin forvitni og hins vegar að meta áhrif hæglætis á leik barna og fagvitund kennara. Þátttakendur í rannsókninni voru stjórnendur og deildarstjórar fjögurra leikskóla sem tóku þátt í þróunarverkefninu Stilla – hæglátt leikskólastarf sem unnið var í samstarfi leikskólanna og fræðimanna frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Suðaustur-háskólanum í Noregi á árunum 2022–2025. Byggt var á aðferðum hönnunarmiðaðra rannsókna og gagna aflað með rýnihópaviðtölum og uppeldisfræðilegum skráningum. Niðurstöðurnar sýna að hæglæti felst ekki einungis í breyttum starfsháttum heldur faglegri og siðferðilegri afstöðu sem mótar samskipti, skipulag og menningu leikskólans. Birtingarmyndir hæglætis komu fram í fjórum meginstoðum: Að dvelja með börnum og rækta nærveru; að fara út af sporinu og sýna sveigjanleika gagnvart áhuga og líðan barnanna; að kafa djúpt og skapa skilyrði fyrir samfellu og merkingarbæru námi; og að horfa til lengri tíma. Kennarar lýstu aukinni ró, djúpstæðari tengslum við börn og betri skilyrðum fyrir flæði í leik og námi. Þeir töldu að börnin í leikskólunum sýndu aukna sjálfstjórn, félagsfærni og sköpun þegar þeim gafst lengri tími til könnunar og leiks. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að aukið hæglæti í leikskólastarfi geti verið raunhæf leið til að efla gæði, vellíðan og lýðræðislega þátttöku barna. Niðurstöðurnar kalla jafnframt á endurskoðun/hugsun á dagskipulagi leikskóla til að skapa rými fyrir „réttan takt“ (ít. tempo giusto) í leik, tengslum og samskiptum barna og fullorðinna.

Zitieren

APA

Hreinsdóttir, A. M., & Dýrfjörð, K. (2026). Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2026/9

Vancouver

Hreinsdóttir AM, Dýrfjörð K. Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf. Netla. 2026. doi:10.24270/netla.2026/9

BibTeX
@article{Hreinsdttir2026,
  author = {Hreinsdóttir, Anna Magnea and Dýrfjörð, Kristín},
  title = {Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf},
  journal = {Netla},
  year = {2026},
  doi = {10.24270/netla.2026/9}
}
Kostenlos starten →