EUVIMEDEUVIMED entdecken
Open Access · CC BY 4.0

Kynjað starfsumhverfi kvenkyns nýliða í grunnskólakennslu

Aðalheiður Anna Erlingsdóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, Valgerður S. Bjarnadóttir

Netla · 06.12.2024

DOI: 10.24270/netla.2024/18 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, online erschienen am 06.12.2024. Verfasst von Aðalheiður Anna Erlingsdóttir und 2 weiteren Autor:innen. Die Arbeit wurde bisher 1-mal zitiert (Crossref). Der Volltext ist frei zugänglich (Open Access, CC BY 4.0).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Rannsóknin er um hvernig nýlega brautskráðum kvenkyns kennurum í grunnskólum vegnaði í starfinu fyrstu árin, að hvaða leyti starfsumhverfi þeirra var kynjað og kvenvætt, og hvað reyndist styðjandi og hvað krefjandi. Greinin er byggð á viðtölum við fjóra kvenkyns nýliða sem rætt var við þrisvar til fjórum sinnum, á eins til tveggja ára tímabili. Konurnar fjórar voru á aldrinum 27–32 ára haustið 2021 þegar fyrstu viðtölin fóru fram og höfðu frá engri starfsreynslu til þriggja ára í fullu starfi sem kennarar eða leiðbeinendur. Fáir karlar voru að störfum með ungu konunum og þannig unnu kvenkyns kennararnir hver með annarri í margvíslegu teymissamstarfi og með kvenkyns stuðningsfulltrúum – með frekar fáum undantekningum; skólarnir sem vinnustaðir voru að miklu leyti kvennavinnustaðir. Viðmælendum okkar fannst munur á væntingum og kröfum til stuðningsfulltrúa innan skólanna eftir kyni. Minni kröfur væru gerðar til karlkyns stuðningsfulltrúa og þá virtust þeir bera minni ábyrgð. Í stöku tilvikum fannst þeim sama viðhorf eiga við um karlkyns kennara. Þeir styðjandi og krefjandi þættir sem voru mest áberandi voru víðtækt teymissamstarf kennaranna og samstarf við stuðningsfulltrúa. Viðmælendur upplifðu að teymissamstarf, dreifing álags og stuðningur samkennara væru miklir kostir við að vinna í teymi. Teymissamstarfið hjálpaði kennurunum ungu við að komast inn í starfið og veittist mikilvægur stuðningur við nýliðana. Vinna með stuðningsfulltrúunum reyndist vera krefjandi þáttur á sama tíma og starf þeirra var nauðsynlegt. Í sumum tilvikum var hlutverk þeirra óljóst. Höfundar telja að gjarna megi formgera nýliðaleiðsögn í kennsluteymum og brýn þörf sé á að skýra betur hlutverk stuðningsfulltrúa.

Zitieren

APA

Erlingsdóttir, A. A., Jóhannesson, I. Á., & Bjarnadóttir, V. S. (2024). Kynjað starfsumhverfi kvenkyns nýliða í grunnskólakennslu. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2024/18

Vancouver

Erlingsdóttir AA, Jóhannesson IÁ, Bjarnadóttir VS. Kynjað starfsumhverfi kvenkyns nýliða í grunnskólakennslu. Netla. 2024. doi:10.24270/netla.2024/18

BibTeX
@article{Erlingsdttir2024,
  author = {Erlingsdóttir, Aðalheiður Anna and Jóhannesson, Ingólfur Ásgeir and Bjarnadóttir, Valgerður S.},
  title = {Kynjað starfsumhverfi kvenkyns nýliða í grunnskólakennslu},
  journal = {Netla},
  year = {2024},
  doi = {10.24270/netla.2024/18}
}
Kostenlos starten →