EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Orðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs: Langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleika

Hrafnhildur Ragnarsdóttir

Netla · 2019

DOI: 10.24270/netla.2018.15 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, 2019. Verfasst von Hrafnhildur Ragnarsdóttir. Die Arbeit wurde bisher 2-mal zitiert (Crossref).

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Greinin fjallar um orðaforðahluta rannsóknar á þróun máls og læsis meðal íslenskra barna á aldrinum 4 til 8 ára. Um er að ræða viðamikla langtímarannsókn á f lestum þáttum málþroska og tengslum hans við þróun læsis og félagsþroska. Til að bæta úr skorti á íslenskum mælitækjum fyrir orðaforða var útbúið orðaforðapróf fyrir börn á aldrinum 4 til 8 ára, kallað Í sl -PPV T.Markmið þess hluta rannsóknarinnar sem greinin fjallar um var að af la vísbendinga um vaxtarhraða orðaforða íslenskra barna á mörkum leik- og grunnskóla, kanna stöðugleika mælinga með nýja orðaforðaprófinu milli ára og meta réttmæti þess. Þátttakendur voru 222 börn í tveimur aldurshópum sem sköruðust í 1. bekk. Í yngri hópnum voru 111 börn, 55 stúlkur og 56 drengir, sem fylgt var eftir við 4, 5, 6 og 8 ára aldur. Í þeim eldri voru 46 stúlkur og 65 drengir prófuð með orðaforðaprófinu við 6 og 7 ára aldur. Munur á meðalorðaforða hópanna tveggja í fyrsta bekk var ekki marktækur og því hægt að sameina þá í einn. Niðurstöður sýndu að orðaforði barna vex hratt á þessu aldursbili en jafnframt birtust vísbendingar um mikinn einstaklingsmun strax við 4 ára aldur. Áreiðanleiki og réttmæti Ísl-PPVT reyndist vera fullnægjandi; prófið sýndi marktæka fylgni við aðra orðaforðamælingu (Orðalykil), mælingar á málfræðiþekkingu öll árin, við hlustunarskilning í leikskóla og við lesskilning í 4. bekk. Eins og fjölmargar erlendar rannsóknir sýnir rannsóknin því fram á tengsl orðaforða frá 4 ára við lesskilning og aðra þætti læsis allt upp á miðstig grunnskóla. Í ljósi þess hve mikilvæg undirstaða er lögð á þessum árum fyrir síðari lesskilning og námsárangur hlýtur að vera forgangsatriði að finna þau börn sem standa höllum fæti ekki síðar en við 3 til 4 ára aldur, fylgjast grannt með þeim og tryggja viðeigandi stuðning og námsaðstæður til að fyrirbyggja námsörðugleika síðar.

Zitieren

APA

Ragnarsdóttir, H. (2019). Orðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs: Langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleika. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2018.15

Vancouver

Ragnarsdóttir H. Orðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs: Langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleika. Netla. 2019. doi:10.24270/netla.2018.15

BibTeX
@article{Ragnarsdttir2019,
  author = {Ragnarsdóttir, Hrafnhildur},
  title = {Orðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs: Langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleika},
  journal = {Netla},
  year = {2019},
  doi = {10.24270/netla.2018.15}
}
Kostenlos starten →