EUVIMEDEUVIMED entdecken
Crossref

Sköpun í stafrænum heimi: Sjónarmið myndmenntakennara

Sigríður Ólafsdóttir, Rannveig Björk Þorkelsdóttir, Hanna Ólafsdóttir

Netla · 2019

DOI: 10.24270/netla.2018.12 ↗

Kurz gefasst

Fachartikel in der Zeitschrift Netla, 2019. Verfasst von Sigríður Ólafsdóttir und 2 weiteren Autor:innen.

AbstractBibliografische AngabenZitierenVerwandte Studien

Abstract (Originalsprache)

Markmið rannsóknarinnar var að kanna notkun snjalltækja í listgreinum. Í ljósi aukinnar notkunar snjalltækja í skólastarfi og mikilvægis skapandi hugsunar er leitast við að kanna hvernig slík tæki eru notuð í myndmenntakennslu. Jafnframt er markmiðið að kanna notkunarmöguleika tækninnar í myndmennt og tækifæri til sköpunar. Í rannsókninni var notuð eigindleg rannsóknaraðferð og tekin hálfopin viðtöl við fjóra myndmenntakennara og einn margmiðlunarkennara sem starfa í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangurinn var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hver er tilgangurinn með notkun snjalltækja í myndmennt, hvernig nota kennarar tækin í kennslu og hver eru tækifærin til sköpunar? Í þessari grein eru skoðuð viðhorf kennara til tækninnar og snjalltæki sem verkfæri skoðuð. Niðurstöður leiddu í ljós að snjalltæki eru notuð sem tiltekin verkfæri í myndmenntakennslu en þau nýtast nemendum við upplýsingaleit, hugmyndavinnu og efnisleit. Notkun snjalltækja kemur ekki í staðinn fyrir hefðbundnar aðferðir í myndmennt heldur er meginhlutverk þeirra að styðja vinnuferli og verkefni nemenda. Þrátt fyrir takmarkaða notkun snjalltækja í myndmennt og ólík viðhorf kennara til notkunar tækninnar í greininni gefa niðurstöður til kynna að upplýsingatækni og gagnvirkir miðlar geti ef lt skapandi hugsun nemenda. Færni nemenda til sköpunar og þekking þeirra á tækninni gegnir þar stóru hlutverki. Í myndmennt geta skapast tækifæri fyrir kennara til að breyta kennsluháttum sínum með því að nýta snjalltæki á virkan hátt við ný verkefni sem annars væru óframkvæmanleg. Þannig getur tæknin bæði nýst til að breyta nálgun og stutt hefðbundnar aðferðir.

Zitieren

APA

Ólafsdóttir, S., Þorkelsdóttir, R. B., & Ólafsdóttir, H. (2019). Sköpun í stafrænum heimi: Sjónarmið myndmenntakennara. Netla. https://doi.org/10.24270/netla.2018.12

Vancouver

Ólafsdóttir S, Þorkelsdóttir RB, Ólafsdóttir H. Sköpun í stafrænum heimi: Sjónarmið myndmenntakennara. Netla. 2019. doi:10.24270/netla.2018.12

BibTeX
@article{lafsdttir2019,
  author = {Ólafsdóttir, Sigríður and Þorkelsdóttir, Rannveig Björk and Ólafsdóttir, Hanna},
  title = {Sköpun í stafrænum heimi: Sjónarmið myndmenntakennara},
  journal = {Netla},
  year = {2019},
  doi = {10.24270/netla.2018.12}
}
Kostenlos starten →