Kurz gefasst
Fachartikel in der Zeitschrift Netla, 2020. Verfasst von Helgi Skúli Kjartansson.
Abstract (Originalsprache)
Greinin fylgir eftir rannsókn Lofts Guttormssonar (2007) á svonefndum „daglegum einkunnagjöfum“ í íslenskum barnaskólum, sérstaklega í Reykjavík, áratugina kringum 1900. Samsvarandi einkunnagjöf í Lærða skólanum í Reykjavík, sem Loftur telur beina fyrirmynd barnaskólans í því efni, er athuguð með samanburði útgefinna heimilda við „vitnisburðarbók“ skólapilts 1885–1886. Lauslegur samanburður sýnir að framkvæmdin var svipuð í dönskum skólum og hinum íslensku, aðferðinni í báðum löndum beitt löngu eftir að hún var orðin hastarlega á skjön við viðtekna kennslufræði. Aðferðin fólst í að gefa nemanda talnaeinkunn fyrir frammistöðu sína í hverri kennslustund og hélst í hendur við „yfirheyrsluaðferð“ í kennslu, þ.e. að kennari setti fyrir og hlýddi yfir án þess að eyða tíma í útskýringar eða fræðslu. Eftir einkunnum var nemendum svo skipað í „skólaröð“ sem m.a. réð sætaskipan í skólastofunni. Í Lærða skólanum var þessi aðferð nokkuð umdeild en þó beitt – með ýmsum tilslökunum, misjöfnum eftir námsgreinum – uns hún var afnumin með breytingunni í menntaskóla 1904. Í barnaskólum fjaraði hún út um svipað leyti, svo treglega þó að 1908 sá nýskipaður fræðslumálastjóri ástæðu til að mæla skörulega gegn henni.
Zitieren
APA
Kjartansson, H. S. (2020). Dagleg einkunnagjöf í íslenskum skólum. Netla. https://doi.org/10.24270//netla.2020.13
Vancouver
Kjartansson HS. Dagleg einkunnagjöf í íslenskum skólum. Netla. 2020. doi:10.24270//netla.2020.13
BibTeX
@article{Kjartansson2020,
author = {Kjartansson, Helgi Skúli},
title = {Dagleg einkunnagjöf í íslenskum skólum},
journal = {Netla},
year = {2020},
doi = {10.24270//netla.2020.13}
}
EUVIMED